Spilaborg
  • Verslun
    • Hættuspilið
    • Útvegsspilið
    • Bækur
    • Myndir
    • Annað
  • Hafa samband
  • Menu Menu
  • 0Shopping Cart

Blóðrauður snjór

6.990 kr.

Þegar athafnamaðurinn Flosi kemur heim í kvöldmat er allt á rúi og stúi en Guðrún kona hans horfin. Á eldhúsborðinu bíður bréf um að henni hafi verið rænt og ef Flosi greiði ekki himinhátt lausnargjald verði hún drepin. Hann má ekki leita til lögreglunnar en eftir krókaleiðum kemst hann í samband við Áróru, sem vinnur við að finna falið fé, og Daníel rannsóknarlögreglumann. Án þess að nokkuð spyrjist út reyna þau í sameiningu að átta sig á hvað hefur gerst. Getur verið að ránið á Guðrúnu tengist alþjóðlegri glæpastarfsemi og peningaþvætti – eða er skýringin ef til vill mun nærtækari?

Blóðrauður sjór er hröð og hörkugóð glæpasaga með óvæntum vendingum, sjálfstætt framhald sögunnar Helköld sól þar sem Áróra og Daníel voru líka í aðalhlutverki – og spennan milli þeirra tveggja fer síst minnkandi.

Lilja Sigurðardóttir hefur skrifað skáldsögur, leikrit og sjónvarpsþáttahandrit. Glæpasögur hennar hafa notið mikilla vinsælda og verið verðlaunaðar heima og erlendis; Gildran var tilnefnd til breska Gullrýtingsins og fyrir Búrið og Svik hlaut hún Blóðdropann og tilnefningu til norræna Glerlykilsins tvö ár í röð.

Flokkur: Bækur

Tengdar vörur

  • Þín eigin undirdjúp

    4.990 kr.
  • Barnaræninginn

    4.990 kr.
  • Gata mæðranna

    6.990 kr.
  • Þagnarmúr

    6.990 kr.
Spilaborg.is - Sími 416-1718 - Tölvupóstfang spilaborg@spilaborg.is
  • Facebook
  • Notkunar- og persónuverndarskilmálar
Gömlu skipin Gata mæðranna
Scroll to top