Fuglar Íslands - App
Með borðspilinu Fuglar Íslands fylgir app sem spilar fuglahljóð og sem bingóstjórinn getur notað til þess að stýra bingóinu.
Sömuleiðis geta leikmenn notað appið til þess að spila í bílnum og þá þarf bara fuglaskífurnar.
Í appinu má einnig fræðast um all fugla spilsins, hlusta á hljóðin þeirra og meira að segja safna þeim í fuglasafn ef þið sjáið fuglana í náttúrunni.
Appið er frítt á Play store og App store en til þess að nota það þarf að slá inn kóðann sem fylgir með hverju spili. Hægt er að opna 5 öpp með hverjum kóða.
Ef þú glatar kóðanum eða átt í vandræðum með að opna appið getur þú haft samband í tölvupósti á [email protected]